Færsluflokkur: Matur og drykkur

Mourvédre

þessi þrúga virðist vera að skapa sér meira nafn í hinum alþjóðaheimi vínsins. Þrúgan er líka þekkt undir nafninu monastrell á Spáni og Mataro í Ástralíu. Heimkynni hennar er Bandol í Provence við miðjarðarhafið þar sem að hún hefur gengið í endurnýjun lífdaga á síðustu árum sem og nánast öll víngerð í því héraði. Hún er í öðru sæti yfir mest ræktuðu þrúgur á spáni á eftir Garnacha. Hún er erfið í ræktun og getur gefið af sér eitt gott ár og svo þarf jafnvel að bíða í allt að tíu ár eftir næsta góða ári. Enn best gengur henni í hlýju loftslagi eins og við miðjarðarhafið í Evrópu.
En af hverju leitum við í mourvédre vínum. Hún angar af leðri, kryddjurtum og pipar og oft verðu hún sætari í nýja heiminum. Hún virðist njóta sín mjög vel með grenach og syrah (þau vín oft nefnd GSM) þar sem að hún virðist gefa gott krydd í vínin á móti fyllingu grenche og ávextinum í syrah. Dæmi um vín þar sem að mourvédre á í hlut eru, Domaine Tempier Cabassaou, d´Arenberg Mourvédre og Rosemount GSM

Frábær GAJA

Jæja þá er ég nýkominn af GAJA kynningunni. Þar var smakkaður fjöldinn allur af frábærum vínum frá þessum einstaka framleiðanda sem einblínir frekar á gæði en magn.

Fyrst var smakkað hvítvínið GAIA & REY 1995 (GUY-yah eh rey) Langhe D.O.C. Þetta er chardonnay sem er geymdur á lítið notaðri eik í 6-8 mánuði og þvílíkt nammi. Lyktin var hunang og sítrus en í munni marsipan og aprikósur og gott jafnvægi bæði á sýru og eik. Vægast sagt frábært vín. Einkunn 9,5

Sito Moresco 2004 (SEE-toh moh-RES-koh)Langhe D.O.C. 35% Nebbiolo 35% Merlot35% Cabernet Sauvignon. 18 mánuðir á eik og 6 á flösku skiluðu sér í angan af rauðum berjum og flauelsmjúkt í munni með þónokkurri sýru, svolítið kardó í eftirbragði. Fínt vín einkunn 8,8

Promis 2004 ( PRO-mees) Toscana I.G.T. 55% Merlot 35% Syrah 10% Sangiovese Þetta vín var fjólublátt að lit og ilmaði af kirsuberjum með eik i undirtón. Í munni var það sólríkt og í góðu jafnvægi. Einkunn 8,5

Rennina 2000 ( ray-NEE-nah) Brunello di Montalcino D.O.C.G. Tvö ár á eik og tvö á flösku gaf af sér þroskaða rauða ávexti. Flauelsmjúkt í munni með sætum undirtón og töluverðu tanníni. Einkunn 9,2

Conteisa 1991 (kohn-TAY-zah) Langhe D.O.C.G var 100% nebbiolo sem var kominn með múrsteinsrauðan lit sökum aldurs gaf þó af sér angan af rauðum ávöxtum þó svo að minna hafi farið fyrir þeim í munni. Kannski kominn yfir það léttasta sökum aldurs. Einkunn 7

Barbaresco 2001 (bar-bah-RES-koh) Barbaresco D.O.C.G 100% nebbiolo. 24 mánuðir á eik, dökkrauður að lit og ilmur rauðum og dökkum berjum. Vel uppbyggt vín í munni og flókið bragð og silkimjúk tannín. Þetta vín var alveg tilbúið til drykkju en framleiðandi segir að hægt sé að geyma það í um 30 ár (líklegt að það klárist áður en nær 30 ára aldri) Einkunn 9,7

 Niðurstaða: öll vínin með frábæran karaktar en báru þess merki að sami víngerðarmaðurinn hafi haft sína putta á þeim og á hann heiður skilinn fyrir einstök vín sem enginn unnandi góðra vína ætti að láta fram hjá sér fara.

gaja


Dominique Plédel Jónsson

Franska víndrottningin sem hefur undanfarið alið manninn í Íslandi hélt námskeið fyrir vínklúbb Akureyrar síðastliðnn miðvikudag. Heiti námskeiðsins var vínlandafræði. Þetta var kannski ekki djúpsjávarköfun í vínlandafræði. Heldur var farið létt í sögu vínsins, víngerðina og mismuninn milli nýja og gamla heimsins. Síðan voru smökkuð nokkur vín.

Leonardo Chianti þótti nútímalegur þó með hefðbundnum kirsuberjailm og var frekar sætur í munni

Beronia Reserva var nokkuð hefðbundinn Rioja, eikaður og vanilluilmur og ilmur af appelsínu og því verðugt að prófa með súkkulaði

Chateau d´Agassac ver frekar lokaður en ilmaði þó af sólberjum og eik, en þyrfti að geyma í 2-5 ár eða umhella kröftulega fyrir neyslu.

Trivento Cabernet Malbec var gríðarlega þunglamalegur og illaðgengilegur

Pepperwood Syrah var frekar ljóst að lit miðað við syrah, lítl eik og töluverð sýra, svolítið nýr stíll á syrah vínum

Climbing shiraz fékk miðaverðlaunin þetta kvöldið. En hér er á ferð gamall víngerðamaður frá Rosemount sem hefur greinilega ekki fengið sínum hugmyndum framgengt þar. Hérna hefur hann lækkað alkóhólið og eikina sem skilar sér í betra jafnvægi og aðgengilegara víni. Flott með grilluðu rib eye

Næst tek ég fyrir vín frá Gaja en víngerðamaðurinn Angelo Gaja er margverðlaunaður í sínu fagi og verður það nú aldeilis spennandi

 


Nýtt þema fyrir bloggið

jæja eftir að hafa ekki látið sjá mig hérna inni í mánuð þá hef ég tekið þá ákvörðun að skipta um þema á blogginu. Í stað þess að reyna að koma með fyndin comment á fréttir af mbl.is hef ég ákveðið að helga bloggið matar og vínmenninug heimsins. Voandi verður það til þess að ég kannski pára eitthvað hérna inn einu sinni í viku eða svo............

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband